Betra er að sofa hjá en sitja hjá! ;) hihih..;D

27.12.2006 18:54:02 / evadogg

Ný síða....

Ætla aðeins að prufa á www.123.is/evadoggkr 

Kíkkið á;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 14:19:58 / evadogg

Góð jól:)

Já þá er best að skella inn einu léttu bloggi fyrir jólin.......

Steplan var ekki í neinu einasta stuði til að skrifa jólakort en er samt búin að fá fullt takk fyrir þau:)

                               

Nú er bara huggulegheit og þvílík afslöppun á næsta leiti og ég ætla ekkert að djamma um jólinn bara vera heima og gúffa í mig og horfa á tv og hafa það rosa gott en ætla samt að fara í World class svona annað slagið!!!! Svona svo maður hlaupi nú ekki í spik.....

Gleðileg jól elskunar og hafið það rosa gott....  

                                 

                             


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 17:58:02 / evadogg

Góðan dag.....

Er ekki frá því að ég komst í smá Jóla skap í morgun:) Síminn sendi mig og einn strák í leiðangur fórum semsagt velmerkt í fyrirtæki að gefa pakka með sko einkabílstjóra og það var bara frekar jólalegt og allir svo glaðir og bara Gleðileg jól voða sætir.....

                                             

Og jiii hvað gerðist í morgun hjá stelpunni sko í gærkvöldi fór ég inn að sofa okei bara fínt um svona 12 og klukkan stillt á 5:50 til að fara á æfingu en nei nei vaknar gellan ekki bara 8:30 halló 2 tímum of seint og vó það lagðist sko ekki vel í mig að koma of seint hvað þá þegar ég var að fara í þetta mission!!!!!!

                                                 

Annas bara lítið að frétta er bara byrjuð að huga að Danmerkurfluttningnum að a.t.h flug og svonna þó að það ég svo skrítið að þegar ég er hér þá vill ég vera í Danmörku og þegar ég er þar þá vil ég vera hér eða eithvað hvað er málið með það??? Kannski að ég flytji bara til Mónakó.... Þar eru ekki borgaðir skattar!!!! Maður spyr sig???

Well later honey's.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 15:12:05 / evadogg

Komin heim......

Það var náttúrulega bara æði í Danaveldi ekkert smá gaman hjá okkur og alveg ferlega kósý..... Voðalegt flakk samt á okkur og það er sko allt frekar mikið vesen þarna skal ég segja ykkur og að skreppa er ekki skrepp vó allt frekar langt!!!!!

Syvsten þorpið semsagt er svo lítið og ekki búð eða neitt:) Og þegar ég var úti að skokka þá snéru fólk sér sko úr hálslið til að kíkja á nýja kjötið í bænum.....

En samt voða kósý og ég hlakka til að flytja í Mars og kvíði líka pínu pínu fyrir sérstaklega því allt er svo mikið vesen en það er líka bara spennandi og gott að þurfa að hafa fyrir hlutunum!!!!!

                             

Núna er svo bara vinna frá helvíti enda búina að vera í fríi svo lengi og halló bara allt í einu komin jól og ég er ekki í jólagír..... Ææææææ

Tók einhverjar myndir í Danmörku og á Jólajóla Símans og setti þær á síðunna hennar Öddu því mitt er eihvað klikkað:) Kíkkið á ferlega fyndið sko....

www.123.is/andrea

Vill að allir kvitti!!!!! Kiss og knus.....


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 19:31:34 / evadogg

Komin til Danmerkur...

Já klikkaði aðeins á blogginu áður en ég fór út var líka ekkert hress eftir jólajóla hjá símanum var bara ælandi og læti og var endalaust lengi að ná því úr mér.... Ógeð sko!!!

Það er búið að vera alveg nóg að gera hér enda Adda með allt á hreinu hvað ég á að vera gera... Í 2 daga erum eða ég búin að þrífa húsið hágt og lágt!!!! Og drekka fullt að hvítvíni og bjór... Fara í jólakofan hennar að selja dót... Versla og vesenast endalaust sko... Og ég er búin að vera geggjað dugleg að fara út að skokka!!!!!! Og passa Garðar og fara með hann um allan bæ....

En tölvu helvítið er bilað þannig að þetta er gótt í bili enda kem ég heim á laugardag og fer beint að vinnna í Viðey!!!!!

Ekki gleyma að kvitta.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 16:24:32 / evadogg

Góða helgi....

                                             

Stelpan er alveg að missa sig helgarspenning eða bara spenning nátttúrulega alveg að koma að Damnerkurferðinni langþráðu!!!!!

Allavega þá er allt að gerast í vinnunni leynivinaleikur og gleðin ræður ríkjum hér á bæ og ég er búin að þá bangsa og geggjaða jólasokka rosa spennene fæ svo að vita á morgun hver er vinur minn...

En svona án gríns þá er náttúrulega ekki alveg í lagi með mig í hausnum sko í gær eftir vinnu fór ég að þjóna og var til 12 og fínt mál og fór heim að sofa  kannski um 1 og viti menn þá án þess að hugsa stilli ég klukkuna 5:35 og fer í ræktina og skelli mér á brettið svo þreytt að mér svíður í augun og þá hugsaði ég líka vá er ég geggjuð eða ég hefði sko ekki sprungið úr spiki ef ég hefði sleppt einni æfingu og be the way þá er ég að fara í Viðey á eftir og verð til svona 1!!!! Frábært...Verð sennilega ekki skemmtileg í kvöld það sem ég verð eins og lítill krakki þegar ég er þreytt.....

Nóg af væli....hehe

Góða helgi elsku rúsínunar mínar...


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 17:24:53 / evadogg

Jólajóla.....

Jóla hvað.......

Jólaandin er nú kannski að læðast yfir mig hægt og rólega það er líka rosa jóló í vinnunni og jólaleikur í gangi svo jóladæmið á Laugardaginn.... Spennene....

Það ekkert eðlilega erfitt að bíða eftir því að fara til Danmerkur alveg bara geng fyrir því enda er Adda búin að byrja sig upp að nauðsinnum fyrir komu mína semsagt til nóg hvítvín!!!!

Já ekki má nú gleyma fyrsta Jólajóla sem ég er að fara vinna á í Viðey á morgun það er ekkert smá skrítið að vera án Versala í Desember og tala nú ekki um að vera án Papana....

Well honey's later


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 13:58:18 / evadogg

Voða gaman.....

Stelpan er ekkert smá ánægð með kvittin og jólaskapið alvega að koma....

En verð að setja inn þennan skemmtilega leik....

1. Hver er uppáhalds sundaðferðin þín?

2. Hver er asnalegasta auglýsing í heimi?
 
3. En skemmtilegasta?

4. Hver er asnalegasta afmælis-jóla eða tækifærisgjöf sem þú hefur fengið?

5. Hefuru verið rekin/n úr vinnu?

6. Þegar þú kaupir póstkort, sendiru þau í alvöru eða ætlaru það bara?

7. Hvað kaupiru alltaf í fríhöfninni?

8. Hvað er það alvandræðalegasta móment sem þú hefur lent í?

9. Hræðilegasta pikköpp lína sem þú hefur fengið??

10. Hefuru einhverntíma vaknað við þær aðstæður að þig langar til að skjóta þig í hausinn þegar þú sást hver var við hliðina á þér??

11. Hefuru pissað á þig eftir fermingu??

12. Ef þú ert karlmaður trúiru þá í alvöru að stelpur kúki ekki eða ertu bara að þykjast??

13. Ef þú mættir velja þér eitt nafn frá teiknimyndapersónu sem þú mættir heita hvað væri það?

14. Hver er sú alsóðalegasta og ógeðslegasta fantasía sem þér hefur dottið í hug??

Bara 5 dagar í Damaveldi og 2 í Jólajóla Símans...

Later......


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 12:23:30 / evadogg

Bllaaaaaaaa.....

Vó er ekkert eðlilega mygluð þótt ég hafi ekki farið út fyrir húsins dyr í gær var bara alveg í letinni og var ekkert voðalega hress var með illt í maganum og svonna....

Planið breyttist aðeins á föstudaginn því elsku Engjaborgarkonunar buðu mér með sér á Broodway á Tínu Turner showið vá ekkert smá skemmrilegt ég var næstum því bara kjaftstopp allan tíman!!! Svo var líka jólahlaðborð og bara frekar góður matur... Svo þegar líða fór á kvöldið þá voru Eyvi og co að spila og þá var ég náttúrlega búin að drekka örlílið of mikið af öllu og man ekkert voðalega mikið en það var rosa gaman ég man það:)

                               Ladies Night Out

Núna er bara akkurat vika í að ég fari til Öddu minnar og Jóa held samt að ég hitti Jóa eithvað lítið því ég kem á Mánudegi og fer á Laugardegi og það eru einmitt daganir sem hann er að vinna.....

En annað þá er ég að spá í að sleppa Jólunum þetta árið er bara ekkert að komast í Jólafílingin vildi helst bara hafa sumar....

Eithvað er nú lítið um það að fólk kvitti ég er ekkert voðalega sátt við það sko!!!

Later fallega fólk.....


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 17:35:55 / evadogg

Jólajóla........

http://julli.is/jol/jol02/punktur.htm

Þetta er ekkert smá skrítið ég fékk pínu sjokk og gerði þetta aftur og aftur.... Enda í vinnunni og það er frekar rólegt....

Síðustu daga er stelpan búin að vera rosa löt bara búin fara á æfingu og vinnu nenni engu sko það er líka gott að vera bara til friðs stundum því það kemur ekki oft fyrir:)

Nú eru bara 10 dagar í Danmörku og það er svo ferlega erfitt að bíða svona og það er sko vinna alla daga þangað til úffff en reyndar frí á morgun!!!!

Svo er spurnig með morgundaginn hvort maður skelli sér á Jólaglögg símans Paparnir að spila og voða húllumhæ en veit ekki hvað maður á að gera sko....

Seeja jaall.........


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 17:52:02 / evadogg

Svoldið spes.....

Þú ert orðin fullorðin ef........

1. Pottaplönturnar þínar eru á lífi og þú getur ekki reykt eina einustu.

2. Þú gefur þér tíma til þess að taka af þér úrið áður en þú ferð að stunda kynlíf.

3. Þú geymir meiri mat en bjór í ísskápnum.

4. Klukkan 6 að morgni er fótaferðatími en ekki háttatími.

5. Þú heyrir uppáhaldslagið þitt í matvörudeildinni í Hagkaupum.

6. Þú fylgist með veðurfregnum.

7. Vinir þínir giftast og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta saman.

8. Sumarfríið þitt styttist úr þrem mánuðum í þrjár vikur.

9. Bolur og gallabuxur eru ekki lengur spariklæðnaður.

10. Það ert þú sem hringir á lögregluna og kvartar yfir hávaða í nágrönnunum.

11. Eldri ættingjar hætta að segja kynlífsbrandara nálægt þér.

12. Þú hefur ekki hugmynd um hvenær pizzustaðir loka á nóttunni.

13. Bílatryggingarnar lækka en afborganir af bílaláni hækka.

14. Þú ert farin að borða salöt sem aðalrétt.

15. Þú færð bakverk ef þú sefur í sófanum.

16. Þú vaknar kl 9 á sunnudögum af því að "það er svo hressandi"

17. Út að borða og bíó er að fara út að skemmta sér en ekki bara byrjun á góðu kvöldi.

18. Þú verður slæmur í maganum, ekki saddur/södd ef þú færð þér heila pizzu kl 3 að nóttu.

19. Þú ferð í apótekið til þess að fá þér íbúfen,ekki til þess að kaupa smokka eða þungunarpróf.

20. Vín undir níuhundruð kalli eru ekki lengur ágætiskaup.

21. Þú borðar morgunverð á morgunverðartíma.

22. Ég get ekki drukkið eins og ég er vanur kemur í staðinn fyrir "Ég ætla aldrei að drekka aftur svona mikið"

23. 90% af tíma þínum framan við tölvuna fer í raunverulega vinnu.

24. Þú drekkur ekki lengur heima fyrir til þess að spara pening áður en þú ferð á bari.

25. Þú lest allan þennan lista og leitar í örvæntingu að einhverju sem á ekki við þig

Þrælskemmtilegt alveg en ekki  mikið sem á við mig halló ætli maður verði aldrei fullorðinn..... Maður spyr sig.... Veit allavega að sumir eru bara alltaf búnir að vera gamlir og hafa "þetta"bara í sér t.d. að baka og og já eitt gott dæmi hún Adda mín án gríns þá talar hún stundum um blóm við MIG!!!!

Vill fá smá kvitt takk sæta fólk...


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 17:09:58 / evadogg

Jeg er fersk....

      

Vá hvað er mikið búið að gerast síðan síðast:)

Stelpan er búin að vera í Keflavík / Garði svona til skiftis undafarna daga sem var nú bara fínt fyrir utan tilgang ferðar.

Adda mín og Jói og strákanir komu og það var æði að hitta þau...

Við fórum Duus og hittum Stelpunar okkar...

Ég fór að skokka í Garðinum og afi vildi að ég tæki síman með ef ég mundi nú ekki meika allt skokkið...

Fór í ófáar heimsóknir og fékk mikið að borða...

Garðar kom með mér og var eldsprækur...

Hitti alla fjölskylduna hennar Öddu sem er alltaf frekar spes:)

Við misstum okkur í Hvítvíninu úti í skúr það var rosa fínt...

Núna eru akkurat 2 vikur að ég fari til Danmerkur og vá hvað ég hlakka  til ég var alveg vængbrotin í gær eftir að þau fóru:(

Well verð að fara svara....

Og Jane ég var reyndar að kíkja eftir þér í morgun alveg farinn undrast um þig:)

       


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 11:21:47 / evadogg

Hvíl í friði elsku Siggi....

  
Krúttið hann Siggi pabbi hennar Öddu er nú dáinn...
Adda , Jói og strákanir þeirra koma í dag og vá hvað ég ætla að knúsa þau það er búið að vera svo ferlega erfitt að hafa þau einhvað svo alein í Damnörku þegar svona gerist og maður getur ekkert gert sko....
Þannig að ég ætla fara í Keflavíka á morgun og ætla ekki að koma í bæinn fyrr en á sunnudaginn þegar þau eru farinn...

                                           Cute

Verið góð hvort við annað elskulega fólk...

  


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 17:02:56 / evadogg

Fyrir Öddu mína.....

Lítil hjartnæm saga.........

Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum.

Maður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír.

Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð. Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: "þetta er handa þér pabbi". Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður.

En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnnar, "veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?" Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi." Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.

Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.

Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.

Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.

                                            


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 15:36:24 / evadogg

Sniðugt....

í gær var mér nú hugsað til þess hvað maður er nú búin að vera kallaður í gegnum árin og viti menn það eru nú nokkur nöfn sem mér datt í hug og finnst alveg drepfyndinn....

                                            

Bossy er nú nýjasta hjá Ölmu þessa dagana... 

Nabs en það köllum við Eva Guðrún hvor aðra...

Lukkudýrið kallar Albert kokkur mig...

Litla óþekka það kemur frá Versala konunum...

Eva sín það eru Adda og hennar fjölskylda...

Döggin kallar fjölskyldan mín mig...

Hitler fannst strákunum frá Raufarhöfn mjög fyndið...

Austurlanda hraðlestin kallar Jói í Múla mig...

Vamba kemur frá Elvu...

Eve of distrogsion eða hvernig það er skrifað kemur frá Keflavík...

DVD kallar Ómar mig...

Erna kallar mig Bóbatík eða kvefaða auga....

Og ég gæti nú sennilega talið áfram sko en þetta er nú svona það helsta og það er bara furða að maður muni hvað maður heitir....

Það er bara nóg að gera þessa dagana er að skila inn íbúðinni minni:( Og er kominn hálfa leiðina til mömmu... og nóg að gera í vinnuni og alltaf nóg að æfa eða allavega nóg af.... Hehe....

God weekend alle sammen.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Leitarbox

Leitarbox

Leitarbox

Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012